Lögregluþjónar voru kallaðir til verslunar á Seltjarnarnesi í dag þar einhver hafði greitt eða reynt að greiða fyrir vörur með fölsuðum peningaseðli. Í dagbók lögreglunnar segir að málið sé í rannsókn en ekki fylgja frekari upplýsingar eins og það hvort viðkomandi hafi tekist að greiða með seðlinum eða ekki eða hvort einhver hafi verið handtekinn.