Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Einn á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi

Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Snælandshverfinu í Kópavogi síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var allt tiltækt lið kallað út.Íbúar í íbúðinni þar sem eldurinn kviknaði, karl og kona, voru sofandi þar inni þegar eldurinn kom upp. Þau komust út af sjálfsdáðum.Eldurinn kviknaði í kjallara hússins og mikill reykur myndaðist í stigaganginum.Einn var fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði í kjallara fjölbýlishúss í Snælandshverfi í Kópavogi síðdegis.Bjarni Bogi Gunnarsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir útkall hafa borist um klukkan fjögur.Hann segir eldsupptök ekki liggja fyrir að svo stöddu. Búið er að slökkva eldinn og unnið er að frágangi.Fréttin hefur verið uppfærð.
Einn á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta