Samræmt rannsóknarátak á vegum Europol í Hollandi í liðinni viku varð til þess að upplýsingar fundust um 45 úkraínsk börn sem talin eru hafa verið flutt með valdi frá hernumdum svæðum Úkraínu frá innrás Rússa árið 2022.Talið er að nærri tuttugu þúsund börn hafi verið numin á brott frá innrás. Um 40 sérfræðingar frá 18 ríkjum nýttu opnar gagnaveitur og stafrænar aðferðir til að afla upplýsinga, sem hafa verið afhentar úkraínskum yfirvöldum.Málið er afar viðkvæmt og lykilatriði í friðarviðræðum Úkraínu og Rússlands.Sum barnanna hafa verið ættleidd í Rússlandi en önnur eru sögð í endurmenntunarbúðum eða á geðsjúkrahúsum. Sameinuðu þjóðirnar hafa sakað Rússland um glæpi gegn mannkyninu vegna brottflutningsins en rússnesk stjórnvöld segja að börnin hafi verið flutt til að tryggja öryggi þeirra