Veruleg óvissa er um þessar mundir í spám greinenda um verðbólguþróunina en útlit er fyrir að hún muni mælast nánast óbreytt í aprílmánuði, ef marka má meðalspá, en þróun flugfargjalda gæti ráðið miklu um niðurstöðuna. Greinendur vara við því að annarrar umferðar áhrif af hærri verðbólgu muni koma fram á næstu mánuðum.