Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Erfitt að bera kennsl á byrlunarofbeldi í nánum samböndum

Teymisstýra í Bjarkarhlíð segir erfitt fyrir þolendur að bera kennsl á byrlanir í nánum samböndum. Þolendur slíks ofbeldis hafi leitað til Bjarkarhlíðar, en hún telur fleiri hafa orðið fyrir því en leita sér aðstoðar.Umfjöllun CNN um alþjóðlega spjallhópa þar sem menn deila reynslu og ráðum um hvernig byrla megi eiginkonum eða kærustum og beita þær kynferðisofbeldi hafa vakið mikinn óhug.Ofbeldi sem þetta komst í hámæli í réttarhöldunum yfir eiginmanni Giséle Pelicot , sem var dæmdur fyrir að hafa byrlað henni, beitt hana kynferðisofbeldi og boðið tugum annarra manna að gera slíkt hið sama í áraraðir.Samkvæmt umfjöllun CNN er Pelicot-málið aðeins toppurinn á ísjakanum því umræðuhópar og vefsíður tileinkaðar ofbeldinu blómstra á alnetinu. Þúsundir manna ræða þar sín á milli um hvernig eigi
Erfitt að bera kennsl á byrlunarofbeldi í nánum samböndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta