Fyrirtaka í máli grísks manns sem er ákærður fyrir að verða manni að bana í Kópavogi í nóvember var í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 14 í dag. Hann var ekki viðstaddur þinghaldið.Karl Ingi Vilbergsson saksóknari segir í samtali við fréttastofu að við fyrirtökuna hafi verjandi farið fram á dómkvaddan matsmann til að meta áverka hins látna.„Nú er næsta skref að finna matsmann. Það mun taka einhverjar vikur,“ segir Karl Ingi. Þá taki það sennilega einhverjar vikur að gera matið.Þetta hefur í för með sér að aðalmeðferð málsins verður síðar en á var ætlað. Til stóð að aðalmeðferð í málinu hæfist 6. maí. Karl Ingi segir óvíst hvenær aðalmeðferðin verður. „Það er algjörlega óvíst að þetta klárist í sumar.“ ENN Í GÆSLUVARÐHALDI Portúgalskur karlmaður fannst látinn á heimili sínu á Kársnesi í Kóp