Þrír karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir á föstudagskvöld grunaðir um að hafa dregið fjórtán ára stúlkur á tálar. Þær voru farþegar í bíl með mönnunum.Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að lögreglan hafi stöðvað bílinn í almennu umferðareftirliti í Hlíðunum í Reykjavík á föstudagskvöld. Í bílnum voru þrír menn á aldrinum 24-34 ára og tvær fjórtán ára stúlkur. Þær voru undir áhrifum. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru mennirnir af erlendum uppruna, en Ævar Pálmi vildi ekki tjá sig um þjóðerni mannanna.Lögreglan stöðvaði bílinn af tilviljun. Engin ábending hafði borist og stúlknanna var ekki leitað. Ævar Pálmi segir að samsetning fólksins, tímasetningin og ástand stúlknanna hafi verið með þeim hætti að lögreglu þótti vert að rannsaka frekar. Óvenjulegt sé a