Þrír eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa reynt að smygla rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa með flutningaskipinu Dettifossi.Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta. Gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út á morgun. Ævar segir að gera megi ráð fyrir því að farið verði fram á framlengingu.Hann segist ekki geta tjáð sig um hvort þeir grunuðu hafa tengsl við skipulagða brotastarfsemi. Skipið var stöðvað við heimkomu frá Evrópu og er því talið líklegt að efnin hafi komið þaðan.Sex voru handteknir en þremur sleppt stuttu síðar. Tveir þeirra sem eru í haldi eru starfsmenn Eimskips. Lögregla lagði hald á efnin síðastliðinn mánudag. Ævar segir rannsókn miða vel.Verulegt magn fíkniefna fannst og Ævar Pálmi gerir ráð