Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sina brennd á golfvelli

Sinubruni á Hvaleyri í Hafnarfirði hefur vakið athygli margra í dag og hafa ófáar ábendingar borist fréttastofu í hádeginu og síðdegis. Ekki mun þó vera hætta á ferðum.Hjá Golfklúbbnum Keili fengust þær upplýsingar að verið væri að brenna sinu á afmörkuðum svæðum innan lóðar golfvallarins, svæði sem ekki væri hægt að slá á sumrin. Þetta mun vera gert í samráði við slökkvilið og Neyðarlínu og verkinu hagað þannig að engin hætta sé á því að eldurinn breiðist út.Reykur frá sinu.RÚV / Ragnar Visage
Sina brennd á golfvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta