Gengistap samhliða erfiðum aðstæðum á rafmyntamörkuðum og innlausnir meðal fjárfesta þýddi að eignir í stýringu rafmyntasjóðs hjá Visku lækkuðu um liðlega helming í fyrra. Yfir tuttugu fjárfestar lögðu nýjum sjóði Visku, sem beinir einkum sjónum sínum að fjárfestingum tengdum gervigreind, til um milljarð króna á seinni árshelmingi.