Fyrir rétt um 100 árum voru bíóhúsin í Reykjavík tvö að tölu, Gamla bíó og Nýja bíó. Bíóhúsin í Ingólfsstræti og á horni Austurstrætis og Lækjargötu þóttu meðal glæsilegustu húsa hinnar ört stækkandi borgar þegar þau voru byggð, líkt og Þór Martinsson sagnfræðingur sagði frá á Morgunvaktinni á Rás 1. „Þetta voru tveir helstu samkomustaðirnir í Reykjavík og langglæsilegustu húsin,“ segir hann.Þór hefur að undanförnu rannsakað elstu kvikmyndahús Reykjavíkur og áhrif þeirra á borgarmenninguna.„Ég er alinn upp hérna í miðbænum, þekki þessi hús og hef verið gestur þeirra síðan ég man eftir mér. Þetta er verkefni sem talar til mín og margra Íslendinga eða fólks hérna í bænum sem hefur svo til alist upp og mótast af þessari menningu.“ BORGARYFIRVÖLD VILDU EKKI FLEIRI EN TVÖ KVIKMYNDAHÚS Þór se