Yfir sex hundruð hafa sett nafn sitt við undirskriftasöfnun til að mótmæla lokun Foreldrahúss, sem er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda.Úrræðinu verður lokað 1. maí vegna skorts á fjármagni.Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur sagt að það standi ekki til að endurskoða fjárveitingar til Foreldrahúss.Berglind Gunnarsdóttir Strandberg, framkvæmdastjóri Foreldrahúss, segir nauðsynlegt að efla starfsemina með aukinni fjárveitingu.Ráðherra hafi ekki orðið við beiðni stjórnar um fund vegna lokunarinnar. NAUÐSYNLEGT AÐ EFLA STARFSEMI FORELDRAHÚSS Berglind segir það gefa auga leið að efla þurfi starfsemi Foreldrahúss en ekki draga hana saman. Aukin neysla og framboð af fíkniefnum í samfélaginu ýti ekki síst undir þörfina á auknum forvör