Starfsmenn Veitna eru að ljúka viðgerð á lagnakerfi fyrirtækisins sem olli því að heitavatnslaust varð í stórum hluta Kópavogs.Samkvæmt upplýsingum frá Veitum verður heitu vatni hleypt hægt og rólega á lögnina svo hún hitni smám saman. Það tekur um tvær klukkustundir og nokkuð lengri tíma tekur að ná upp þrýstingi á kerfinu, sérstaklega efst á Digranesi.Veitur hvetja fólk til að hringja í neyðarsímann 516 6161 ef það verður vart við heitavatnsleka utanhúss. Verði vart við leka innanhúss er bent á að hafa samband við pípulagningamann.Heitavatnsleysið náði að Hamraborg.RÚV / Ragnar Visage