Samkomulag hefur náðst um kaup Lyfju á rekstri Borgar Apóteks í Borgartúni af Einari Birgi Haraldssyni lyfjafræðingi. Fram kemur í tilkynningu að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, er sögð sjá mikil tækifæri í kaupunum á Borgar Apóteki sem komi til með að styðja við áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins. The post Lyfja kaupir Borgar Apótek í Borgartúni appeared first on 24 stundir.