Það verður flókið að mynda meirihluta í borgarstjórn í vor miðað við nýuppfærða kosningaspá Vísis að mati stjórnmálafræðings. Stóru tíðindin nú séu þau að það mikla sóknarfæri sem opnast hafi á vinstri væng íslenskra stjórnmála sé byrjað að fyllast, sérstaða Vinstrisins sé miklu skýrari en ella.