Undanfarnar tvær helgar hafa ungir knattspyrnukappar keppt á TM mótinu í fótbolta, á vegum Stjörnunnar.Á mótinu keppa börn á aldrinum 4-9 ára, í 6.-8.flokki.Þúsundir barna tóku þátt í mótinu sem hefur fest sig í sessi sem eitt af stóru mótunum í fótbolta.Á opinberri upplýsingasíðu mótsins hafa birst færslur þar sem börnunum er þakkað fyrir þátttökuna.Strákum í 6.flokki var þakkað fyrir komuna með myndskeiði af glæsilegum tilþrifum en stelpum í sama flokki var þökkuð þátttakan með mynd af bangsa.Í gær var svo þakkað fyrir helgina, þar sem yngstu knattspyrnukapparnir höfðu att kappi, með löngu myndskeiði af tilþrifum stráka.Engin stelpa sést í myndbandinu. GERIST TREKK Í TREKK AÐ KONUR OG STELPUR SÉU AFGANGSSTÆRÐ Ingunn Haraldsdóttir, forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna, segir málið