Heitavatnslaust er á stóru svæði í Kópavogi, frá Smiðjuvegi að Hamraborg. Bilunar varð vart í gærkvöldi þegar heitt vatn fór að leka upp á yfirborðið austarlega í bænum og í framhaldi var lokað fyrir heitt vatn við Skemmuveg, Nýbýlaveg, Digranesveg og í nærliggjandi götum.„Það varð bilun í brunni við Skemmuveg,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna. „Brunnar eru svona neðanjarðarrými þar sem hitaveitan er með búnað til að stýra lokunum og til að minnka áhrif á svæðin. Bilunin er þar niðri.“Heitt vatn rann inn í rýmið og var því ekki mögulegt að sinna viðgerðum þar í gærkvöldi.„Það var bara allt of heitt og hættulegt fyrir starfsfólkið okkar. Og að þessu liggur stofnlögn fyrir stórt svæði í Kópavogi og það þurfti að loka fyrir hana til að tryggja aðstæður í brunninum. Þeir e