Helga Bjarti Þorvarðarsyni, sem var dæmdur til 12 mánaða fangelsisvistar fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, hafa borist ítrekaðar líflátshótanir eftir umfjöllun um mál hans í fjölmiðlum. Lögmaður hans segir mikilvægt að umfjöllun byggi á staðreyndum.Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Oddgeiri Einarssyni, lögmanni Helga Bjarts. Hann var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir kynferðislega áreitni gegn barni og húsbrot. Helgi Bjartur braust inn á heimili fyrrverandi samstarfskonu sinnar í september í fyrra, fór inn í svefnherbergi 10 ára sonar hennar og áreitti hann kynferðislega.Rætt var við foreldra drengsins í Kastljósi í nóvember og aftur í síðustu viku eftir að dómur féll. Helgi Bjartur var ekki nafngreindur í fjölmiðlum fyrr en hann sendi frá sér yfirlýsingu, undir nafni, í janú