Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Landsmenn strauja kortin minna heima við en áður

Greiningardeild Landsbanka Íslands segir að merki séu komin fram um að einkaneysla fari minnkandi. Þetta segir deildin eftir að kortavelta innanlands dróst saman annan mánuðinn í röð.Landsmenn notuðu kort sín reyndar aðeins meira í heildina í síðasta mánuði en í sama mánuði í fyrra. Aukningin milli ára var 0,8 prósent að raunvirði. Það á sér þó þær skýringar að landsmenn juku neysluna erlendis um 13,5 prósent en á sama tíma dróst kortaveltan innanlands saman um 2,8 prósent. Þrátt fyrir stóraukna kortaveltu erlendis milli ára í mars fóru landsmenn sjaldnar til útlanda en áður. Þetta telur greiningardeildin til marks um að netverslun Íslendinga í útlöndum hafi aukist milli ára.
Landsmenn strauja kortin minna heima við en áður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta