Umfjöllun fjölmiðla um mál Helga Bjarts Þorvaldssonar sem dæmdur var fyrir kynferðislega áreitni gegn dreng í Hafnarfirði hefur vægast sagt verið villandi að sögn verjanda Helga. Hann segist sjá sig knúinn til að stíga fram og benda á nokkrar staðreyndir í málinu vegna þess sem hann segir vera rangfærslur foreldra brotaþola í viðtölum.