Bandaríski leikarinn og framleiðandinn Patrick Muldoon lést sviplega á sunnudaginn, 57 ára að aldri, eftir að hafa fengið hjartaáfall. Muldoon er þekktastur fyrir leik sinn í sápuóperunum Days of Our Lives og Melrose Place og költklassíkinni Starship Troopers.