Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, telur ranga mynd dregna upp í umfjöllun danska dagblaðsins Berlingske tidende um íslenskan sjávarútveg. Hann segir allt uppi á borðum í íslenskum sjávarútvegi sem fylgi lögum í landinu.Umfjöllunin kom út fyrir nokkrum dögum og er byggð á samtölum blaðamannsins Emil Eire Frerk Olsen við 19 heimildarmenn. Í greininni er sagt að sjávarútvegurinn sé að „éta upp lýðræði landsins að innan“, atvinnugreininni lýst sem „nútíma fámennisstjórn“ og hún er sögð byggð á ótta, græðgi og pólitískum áhrifum. GERT LÍTIÐ ÚR ÍSLENSKU STJÓRNKERFI Guðmundur segir sér ekki finnast vinnubrögð blaðamannsins og miðilsins vönduð. „Mér finnst hann gera lítið úr okkar stjórnkerfi. Hann segir að hér sé spilling og að við fylgjum ekki íslenskum lögum.“Sjávarútvegurinn hafi fyl