Konur eru nú meirihluti notenda örvandi ADHD-lyfja meðal fullorðinna landsmanna en karlar hafa verið í meirihluta á undangengnum árum. Á seinasta ári leystu færri drengir út ADHD-lyf en árið á undan, en eftir sem áður eru drengir enn meirihluti þeirra notenda sem eru yngri en 18 ára. Stúlkum sem leystu út AHDH-lyf fjölgaði á seinasta ári.