„Við sem þjóð með gífurlega þekkingu á genaupplýsingum ættum að vera í forystu í þessum málum á alþjóðavísu, ekki í biðstöðu,“ segir Lilja Kjalarsdóttir en hún greindist með BRCA2-stökkbreytinguna árið 2018, sama ár og móðir hennar greindist aftur með brjóstakrabbamein á fjórða stigi. Móðir hennar lést fjórum árum síðar. Lilja hefur nú lokið fyrirbyggjandi aðgerð og líkur hennar á brjóstakrabbameini eru komnar niður fyrir tvö prósent.