Starfsfólk þjóðgarðsins á Þingvöllum er komið í startholurnar fyrir stórtónleika Kaleo sem haldnir verða 20. júní. Einar Á.E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður segir að gæsla og öll umgjörð hvíli að mestu á viðburðahaldaranum en starfsfólk þjóðgarðsins verði þó til taks.