Írönsk stjórnvöld sögðu í morgun að þau hefðu enga ákvörðun um hvort þau ætli að taka þátt í næstu lotu viðræðna við Bandaríkin um frið á Persaflóa. Esmaiel Baquaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sagði á blaðamannafundi að Íransstjórn hefði engin áform um þátttöku í frekari viðræðum. Hann sagði líka að Bandaríkjastjórn væri ekki að taka þátt í friðarviðræðum af heilum hug.„Á sama tíma og þau segjast vilja friðsamlega lausn og kveðast reiðubúin til viðræðna standa Bandaríkin í aðgerðum sem gefa ekki til kynna að þeim sé alvara með að leita lausna með viðræðum.“Baqaei sagði að árás Bandaríkjahers á íranskt olíuflutningaskip í dag, hafnbann á íranskar hafnir og tafir á að koma á vopnahléi í Líbanon væru allt brot gegn vopnahléssamkomulagi ríkjanna.Donald Trump, forseti Bandaríkjan