Tólf mánaða gömul börn fá í fyrsta skipti leikskólapláss í Kópavogi í haust, samkvæmt tilkynningu frá bænum í dag. Þar segir að öllum börnum sem fædd eru í ágúst 2025 eða fyrr hafi verið boðið leikskólapláss frá og með haustinu. Yngstu börnin verða því tólf mánaða gömul þegar aðlögun hefst í leikskólum bæjarins eftir sumarfrí. Barn með bók í leikskóla.RÚV / Bragi Valgeirsson