Fertugur karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða 100 þúsund krónur í sekt fyrir brot gegn lögum um hatursvernd. Hann skrifaði í færslu við frétt á vef Vísis að endurvekja þyrfti þýsku sturturnar vegna hælisleitenda og sagði að Grikkir kynnu að berja þá til hlýðni svo þeir hugsuðu sér ekki að komast yfir landamærin. Hann kallaði hælisleitendur rottur, mússur, pakk og mannleg meindýr.Dómurinn var kveðinn upp 31. mars en birtist á vef dómstólanna um helgina. Samtökin Solaris kærðu ummælin til lögreglu sem ákærði manninn. Maðurinn viðurkenndi að hafa skrifað textann en kvaðst saklaus af öllum sakargiftum, hann hefði aðeins verið að lýsa skoðunum sínum og fjalla um staðreyndir sem hann hefði lesið um. Hann þvertók fyrir að hafa hótað eða ógnað fólki.Þegar hann var spurður út í orðalagið þýsk