Veður verður með rólegasta móti í dag með hægri breytilegri átt og víðast hvar verður léttskýjað. Það er helst við vesturströndina sem búast má við sunnan golu eða kalda og skýjum.Hæg breytileg átt í dag og víða léttskýjað, en sunnan fimm til tíu metrar á sekúndu og skýjað með köflum við vesturströndina fram eftir degi. Hiti 6 til 14 stig yfir daginn.Suðvestan fimm til þrettán á norðanverðu landinu á morgun, annars hægari vindur. Víða bjart, en skýjað með köflum og líkur á þokusúld vestantil. Áfram milt.