Írönsk stjórnvöld segjast ekki fyrirhuga að mæta til friðarviðræðna við Bandaríkin í Pakistan í dag. Ríkismiðillinn IRIB greindi frá þessu og hafði eftir ráðamönnum að þeir teldu engar líkur á árangursríkum viðræðum vegna óraunhæfra krafa Bandaríkjamanna.Donald Trump segir samningamenn Bandaríkjanna væntanlega til Pakistan, varaforsetann JD Vance ásamt erindrekanum Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasyni forsetans. Vopnahlé milli stríðandi fylkinga rennur sitt skeið á miðvikudag.Lokun Hormússunds og herkví Bandaríkjanna um íranskar hafnir eru helstu ásteitingasteinarnir og málin flæktust enn frekar í gær þegar bandarískt herskip réðst á og tók íranskt flutningaskip herskildi á Ómanflóa.Engin niðurstaða varð af friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran 11. apríl en síðan hefur texti friðarski