Útgönguspár benda til að PB, flokkabandalag Rumens Radev, fyrrverandi Búlgaríuforseta, fái 44 prósent atkvæða í þingkosningum sem haldnar voru í dag og þar með meirihluta á þingi, minnst 129 af 140 sætum.Radev hefur lýst yfir sigri í þessum áttundu kosningum í Búlgaríu síðustu fimm ár. Hver ríkisstjórniná fætur annarri hefur farið með völd í þessu fátækasta ríki Evrópusambandsins frá því fjölmenn mótmæli gegn spillingu leiddu af sér fall stjórnar Boykos Borissov 2021.Evrópusinnaður GERB-flokkur hans og frjálslynda bandalagið PP-DB fá um tólf prósent atkvæða hvor samkvæmt útgönguspánum. Radev sagði af sér forsetaembætti í janúar og hét því að berjast af alefli gegn spillingu. Lokaniðurstaðna er að vænta ekki seinna en á morgun, mánudag.Rumen Radev sagði í ávarpi vonina hafa sigrað og hét þv