Krakkarnir á Ystakletti, sem er fimm ára deild Hamarsskóla í Vestmannaeyjum, ákváðu að grípa til sinna ráða þegar þau sáu að ökumenn í bænum óku of hratt eða voru í símanum.Krakkarnir voru á leiðinni á bókasafnið í bænum á dögunum þegar þau urðu vör við það að ökumenn voru ekki allir með umferðarreglurnar á hreinu.„Það var bíll að keyra allt of hratt í símanum. Það voru tveir bílar að flauta á hann,“ segir Bjarki Þór Einarsson. Hvað datt þér þá í hug að gera? „Senda lögreglunni bréf.“„Við skrifuðum það má ekki keyra of hratt í símanum,“ segir Röskva Hjaltalín í Dali.„Við birtum þetta á samfélagsmiðlum og hvöttum fólk til þess að taka þetta til sín og taka tillit til barnanna okkar,“ segir Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.