Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Róbótar spreyttu sig í hálfmaraþoni

Róbótar komu fyrstir í mark í hálfmaraþoni manna og róbóta á tæknisýningu í Beijing í Kína í dag. Róbótinn í fyrsta sæti, sem kallaður er Elding, er frá kínverska símaframleiðandanum Honor og kom í mark á rúmum 50 mínútum.Róbótar í Kína tóku þátt í hálfmaraþoni í fyrsta sinn í fyrra og þá var sá fljótasti tvo klukkutíma og 40 mínútur. Misjafnt var hvort róbótarnir gætu sjálfir ratað leiðina í dag eða hvort þeim var stýrt.Hlaupið gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig því einn datt á byrjunarlínunni og annar hljóp á girðingu.
Róbótar spreyttu sig í hálfmaraþoni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta