Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að herskip hafi skotið að og yfirtekið flutningaskip sem siglir undir írönskum fána á Ómanflóa. Hermenn hefðu farið um borð til að kanna hvað í skipinu væri að finna.Íransher heitir skjótum viðbrögðum. Íranar og Bandaríkjamenn hafa tekist á um yfirráð yfir Hormússundi um helgina eftir að þeir fyrrnefndu lokuðu eftir skammvinna opnun fyrir siglingar um Hormússund að nýju á laugardag vegna herkvíar þeirra síðarnefndu um íranskar hafnir. FRIÐARSAMNINGUR EKKI TIL UMRÆÐU Írönsk stjórnvöld tilkynntu í dag að þau ætluðu ekki að ræða friðarsamning við Bandaríkin í Pakistan skömmu eftir að Trump sagði samningamenn á leið til Islamabad í Pakistan þeirra erinda.Pakistanski forsætisráðherrann Shehbaz Sharif áréttaði í dag vilja stjórnar sinnar til að miðla málum