Þeir Askur og Laddi eru hundar sem báðir eru á starfsmannaskrá Fjölbrautaskóla Garðabæjar, hundarnir eru báðir með sinn eigin tölvupóst. Hundarnir tveir aðstoða í tímum á sérnámsdeild skólans og hafa þeir reynst vel.Vilhjálmur Þór eða Villi eins og hann er alltaf kallaður og er kerfisstjóri í skólanum á hundana og kemur með þá í vinnuna tvisvar í viku. Hundarnir, sem heita Askur, sem er sjö ára og Laddi, sem er fjögurra ára eru inni í tímum þar sem sérnámsdeildin er með sína aðstöðu. Mikil ánægja er með hundana og framlag þeirra til skólastarfsins.„Okkur finnst þeir bara skila ró og svona friði. Þegar öllum líður vel bæta þeir bara í og ef einhverjum líður kannski ekki nógu vel þá er ofsalega gott að hafa þá,” segir Hrafnhildur Ragnarsdóttir, sérkennari og kennslustjóri á sérnámsbraut skól