Um 130.000 manns hafa horfið í Mexíkó síðustu tvo áratugi. Fólkið er talið hafa verið myrt og leit er drifin áfram af ástvinum. Sameinuðu þjóðirnar segja stjórnvöld ekki ráða við vandann og þurfa utanaðkomandi hjálp.Þrátt fyrir að ekki sé stríð í hefðbundnum skilningi í Mexíkó hverfa þar þúsundir manna ár hvert. Mannshvörfin eru flest rakin til skipulagðra glæpasamtaka.„Sonur minn er horfinn. Nú eru átta ár síðan hann hvarf. Þess vegna stend ég í þessari baráttu og leita hans og allra sem er saknað,“ segir Raúl Servín frá Tlajomulco de Zuniga. Hann fer hvern þriðjudag með félögum sínum og eltir nafnlausar ábendingar sem þeim berast. Hópurinn er vopnaður skóflum og prikum.Þúsundir manna hverfa ár hvert í Mexíkó. Maður sem hefur ekki séð son sinn árum saman leitar líkamsleifa ásamt öðrum ást