Átta börn hafa verið skotin til bana á mismunandi heimilum í Shreveport í Louisiana í Bandaríkjunum. Þetta hefur fréttastofa AP eftir lögreglustjóranum Wayne Smith. Lögregla veitti árásarmanninum eftirför og hann var felldur.Börnin voru á aldrinum eins árs til fjórtán ára. Þau voru skotin til bana á þremur mismunandi stöðum og sum þeirra eru sögð hafa tengst árásarmanninum fjölskylduböndum. Lögreglan telur hann ekki hafa átt samverkamann.Fréttin verður uppfærð.