Þegar Sigríður María Sigurðardóttir og Arnþór Ingi Hlynsson kynntust sumarið 2024 var barneignarspurningin í raun afgreidd áður en sambandið hófst fyrir alvöru. Sigríður hafði árum saman glímt við ófrjósemi og Arnþór vissi frá barnsaldri að meðferð við hvítblæði gæti hafa skert frjósemi hans verulega. Hvorugt þeirra gerði því ráð fyrir barni. Þeim brá því báðum þegar Sigríður fékk jákvætt þungunarpróf aðeins nokkrum vikum síðar. Svo, tæpu ári eftir fyrstu kynni, urðu þau foreldrar Gróu Lífar.