Donald Trump Bandaríkjaforseti segir fulltrúa Bandaríkjanna vera á leið til Islamabad í Pakistan til áframhaldandi viðræðna við Íran. Hann birti færslu á Truth Social þar sem hann sagði samninganefndir funda annað kvöld.Vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans rennur út á miðvikudag.Forsetinn fer ekki með til Pakistan heldur fer J.D. Vance varaforseti fyrir bandarísku samninganefndinni, hefur fréttastofa AFP eftir embættismanni í Hvíta húsinu. Með honum verði Steve Witkoff, sérstakur erindreki, og Jared Kushner, tengdasonur og ráðgjafi Trumps.Trump sagðist bjóða sanngjarna niðurstöðu. Ef Íranar samþykki hana ekki ætli Bandaríkin að eyða öllum kjarnorkuverum og fella allar brýr í Íran. Hann kvaðst hættur öllum vettlingatökum.„Ef þeir samþykkja ekki samkomulagið verður það minn heiður að gera þ