Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Breyting á reglugerð fæli barnalækna úr landi

Formaður Félags íslenskra barnalækna segist sjá fram á að barnalæknum fækki hér á landi vegna reglugerðar sem valdi því að margir fái sérfræðimenntun sína ekki viðurkennda af íslenskum yfirvöldum. Félagið vill að heilbrigðisráðherra endurskoði reglugerðina og túlkun hennar.Reglugerðin tók gildi árið 2023 og segir Helga Elídóttir, formaður Félags íslenskra barnalækna og yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins, að margir læknar hafi rekist á vegg innan kerfisins síðan þá.„Sumir sérgreinalæknar eru að lenda í einhverjum bjúrókratískum ómöguleika að geta ekki fengið sitt sérnám viðurkennt hér á Íslandi.“Lítið framboð af sérnámi á Íslandi þýði að barnalæknar þurfi upp til hópa að sækja menntun í sérgreinum erlendis. Læknar í stærri og fjölmennari löndum geti í meira mæli sótt sérnám í heimalandinu.
Breyting á reglugerð fæli barnalækna úr landi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta