Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Maður vill svo mikið að þetta sé til“

„Við trúum á þetta og við viljum að þetta sé til, þó að þetta sé erfiður bissness. Okkur er alveg sama um það,“ segja myndlistarkonurnar Kristín Karólína Helgadóttir og Tara Njála Ingvarsdóttir sem reka bókverkabúðina og sýningarrýmið Bókumbók á Njálsgötu 11 í Reykjavík. Þar eru bækur og bókverk úr ýmsum áttum og af ólíkum gerðum. Bókumbók heldur líka úti myndlistarsýningum og viðburðum.Melkorka Ólafsdóttir kom við hjá þeim og ræddi við þær í Víðsjá á Rás 1. GERA TILRAUN MEÐ BÓKABÚÐARFORMIÐ Kristín og Tara segjast hafa lengi legið yfir nafninu sem er fengið úr bókverki sem Magnús Pálsson gaf út með nemendum sínum árið 1980. „Ég held að það hafi verið tilraunakúrs í bókagerð, bók sem er stútfull af tilraunum um bókina og bókverk, texta og myndlist,“ segir Kristín.Þetta sé lýsandi fyrir b
„Maður vill svo mikið að þetta sé til“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta