Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að bandarískar sendinefndir muni halda til Pakistan annað kvöld til þess að freista þess að ná friðarsamkomulagi við sendinefndir Írans. Hann sakar íranskar hersveitir jafnframt um að rjúfa vopnahléssamkomulagið sem nú ríkir.