„Ég hef alltaf haft hjarta fyrir Foreldrahúsi,“ segir Sædís Ósk Harðardóttir. Til stendur að loka starfseminni þann 1. maí og stendur Sædís nú fyrir undirskriftarlista til að hvetja ráðamenn í að fjármagna starfsemina. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir mennta- og barnamálaráðherra of upptekna til að funda með þeim.