Erfitt er að ráðast í breytingar á kerfum sjávarútvegsins því að ítök hagsmunaafla ná alla leið inn í þingsal, segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Hann var meðal 19 viðmælenda dansks blaðamanns sem málaði dökka mynd af íslenskum sjávarútvegi í dagblaðinu Berlingske í gær.Heimildarmennirnir lýstu honum meðal annars sem fámennisstjórn, eða óligarkí, sögðu hann byggðan á ótta, græðgi og pólitískum ítökum og að hann væri að „éta upp lýðræði landsins að innan“.Daði segist ekki gera athugasemdir við greinina í sjálfu sér en að hún sé einhliða.„Það er auðvitað pínulítið hefðin þessa dagana að nota mjög stór hugtök og að kalla Ísland óligarkí er að mínu viti auðvitað ekki rétt. Það sýna niðurstöður síðustu kosninga og aðgerðir þessarar ríkisstjórnar með hækkun á veiðigjöldum,“ segir Dað