Í blábyrjun 3. aldar ET ríkti upplausn í Kína. Hið mikilfenglega Han-veldi, sem hafði sameinað landið í fjórar aldir, var komin að fótum fram. Miðstjórnarvaldið í höfuðborginni Luoyang (700 kílómetra frá Bejing) var lamað vegna spillingar innan hirðarinnar, valdaránstilrauna lukkuriddara og uppreisna bændafólks. Þegar vald keisarans var orðið lítið nema nafnið tómt gripu héraðsstjórar og herforingjar tækifærið og gerðust sjálfstæðir...