Ekki stendur til að endurskoða fjárveitingar til Foreldrahúss. Þetta segir mennta- og barnamálaráðherra, farið hafi verið fram á talsvert meira fé en þurfi til starfseminnar og ekki hafi verið hægt að verða við því.Í Foreldrahúsi er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda, það hefur verið til í 40 ár og þar fá um 500 börn aðstoð á hverju ári. VERÐUR LOKAÐ 1. MAÍ Nú stendur til að húsinu verði lokað 1. maí vegna þess að starfsemin fékk ekki styrk frá ríkinu og forsvarsmenn tala um áhugaleysi stjórnvalda.Berglind Gunnarsdóttir Strandberg framkvæmdastjóri Foreldrahúss sagði í viðtali við fréttastofu að þar hefði byggst upp reynsla og traust í áratugi og það skyti skökku við að loka einu af fáum úrræðum fyrir börn í vanda. KOM Á ÓVART AÐ SÓTT VAR