Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Handtekinn með læknadóp og vopn á bar í austurborginni

Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn vegna sölu á læknadópi og fíkniefnum auk brots á vopnalögum í gærkvöld. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók manninn á bar í austurborg Reykjavíkur. Maðurinn var með talsvert magn af lyfseðilsskyldum lyfjum og fíkniefnum í fórum sínum.Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri segir nákvæmt magn lyfjanna ekki liggja fyrir að svo stöddu en sagði ljóst af magninu að þau væru ekki til einkaneyslu. Maðurinn hafi einnig haft hníf og hnúajárn í fórum sínum.Bæði lyfseðilsskyldu lyfin og fíkniefnin hafi verið amfetamínskyld lyf. Unnar segir manninn enn í haldi lögreglu. Hann hafi áður komið við sögu lögreglu meðal annars fyrir svipaða glæpi.
Handtekinn með læknadóp og vopn á bar í austurborginni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta