Bræðurnir Alexander og Jakob Grybos segjast hafa spilað mikið tónlist saman í gegn um tíðina, þá oft í boðum. „Þrátt fyrir að við séum í mismunandi tónlistarsenum, þú í djassi og ég í klassík, þá spilum við oft saman,“ segir Jakob.Alexander segir Grýbos vera fyrst og fremst tilraunaverkefni sem hófst í stúdíóinu og að í upphafi hafi þeir ekki verið með plötu í huga. Hægt og rólega mótaðist þó hugmynd að plötu og fóru þeir þá að semja lög fyrir hana frekar en að vera að leika sér.Það leið þó ekki að löngu að þeir stækkuðu sveitina. „Af hverju ekki að bæta fleiri vinum inn í prójektið,“ segir Alexander en þeir Hlynur Sævarsson og Magnús Már Newman bættust þá við verkefnið.Fyrsta lag sveitarinnar kom út í mars 2025, rúmu ári áður en þeir gáfu út annað lagið sitt. Alexander viðurkennir að það