Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Frá fátækum ríkjum á víglínuna og kannski aldrei til baka

Talið er að á milli 20.000 og 30.000 erlendir hermenn berjist með Rússlandsher á vígvellinum í Úkraínu, langflestir frá fátækum ríkjum. Hluti þeirra hélt að sín biði vinna í Rússlandi, til dæmis við trukkaakstur eða í landbúnaði, en endaði svo á víglínunni. Vegabréfin eru tekin af þeim, rússnesk stjórnvöld geta upp á sitt eindæmi framlengt herþjónustuna þangað til stríðinu lýkur og margir hafa greint frá því að vera hótað ofbeldi reyni þeir að flýja. VILJA STÖÐVA SKRÁNINGAR KENÝAMANNA Í RÚSSLANDSHER Hópur mótmælenda kom saman í höfuðborg Kenýa, Naíróbí, um miðjan mars. Þetta voru um fimmtíu fjölskyldur og fulltrúar mannréttindasamtaka. Hópurinn afhenti þingi landsins undirskriftalista þar sem þess var krafist að gripið verði til aðgerða til að hindra að fleiri Kenýamenn verði skráðir í
Frá fátækum ríkjum á víglínuna og kannski aldrei til baka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta