Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Aldrei skipulagt neitt

Hinrik er sagnamaður, sem nýtist honum bæði í leiðsögn og leiklist og segir mikilvægt að gefa ferðafólki rými til að meðtaka þá miklu orku og stórbrotnu náttúru sem hér er að finna. Ferðaþjónustan sé öflug þegar kemur að afþreyingu, en víða sé pottur brotinn, t.d. varðandi fjölda fólks á viðkvæmum stöðum og samgöngumöguleika frá Keflavíkurflugvelli.Hann lauk nýverið við að leika í erlendri sjónvarpsþáttaröð sem er sjálfstætt framhald hinna vinsælu Vikings þátta og segir hugsanlegt að hann dúkki upp í leikhúsinu einu sinni enn. Líf leikarans sé oft á tíðum eins og að vera á verbúð, langar tarnir og fjarvera að heiman, en með góðum stuðningi fjölskyldunnar hefur hann náð að púsla fjölbreyttum verkefnum saman.Hlusta má á viðtal Huldu Geirsdóttur við Hinrik í spilaranum hér að ofan.
Aldrei skipulagt neitt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta